9.10.2008 | 11:21
Offors í Bretum
Ótrúlegt offorsið í Bretum gagnvart íslensku bönkunum. Það er lygilega illa farið með ríkisvaldið þegar beitt er hryðjuverkalögum, og fyrirtæki lögð í rúst út á orðróm og yfirlýsingar í erlendu sjónvarpi á tungumáli sem enginn skilur.
Það eina sem dugar í framtíðinni er algjör aðskilnaður ríkis og efnahags á Íslandi. Það er eina leiðin til að hægt sé að fara fram á við efnahagslega í ríki sem er svona smátt. Það er óþolandi að ummæli manna sem fara með lífs- og dauðavald yfir íslenskum fyrirtækjum geta fellt þau á einu bretti.
FME yfirtekur Kaupþing | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Stjórnvöld hafa gert sig sek um vítavert gáleysi við þessar aðstæður, haft í frammi yfirlýsingar vinstri hægri, sem standast ekki aðþjóðlegt viðskiptasiðferði. Þjóðir heims bregðast við slíkum ummælum, ekki með silkihönskum!
Sigfús Axfjörð Sigfússon, 9.10.2008 kl. 11:29
Bretar gera sig seka um að sparka í liggjandi mann í stað þess að rétta hjálparhönd. Vond lykt af þessu.
Hjörtur (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 11:34
Kapítalisminn er hruninn !!!!
Jessss.....brosið hringinn með roð í kinnum!!!!
Dís
sigríður bryndís baldvinsdóttir (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 19:22
Og hvað tekur við? Mannát? Verði þér að góðu, Dís.
Rúnar Óli Bjarnason, 9.10.2008 kl. 23:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.