Færsluflokkur: Bloggar
20.9.2008 | 04:58
Munur á ræningja og innbrotsþjófi
Líklega hefur maðurinn verið dæmdur sekur um rán af fyrstu hendi, frekar en innbrot. Innbrotsþjófnaði fylgja ekki háar refsingar í Bandaríkjunum almennt, en ef húseigandi er viðstaddur eins og í þessu tilfelli, þá er um að ræða rán sem er refsivert undir alríkislögum. Hefur dómstóll eflaust kveðið upp þyngstu leyfilegu refsingu vegna aldurs fórnarlambsins þar að auki.
Stal úr sparibauk ungabarns | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.9.2008 | 21:11
Eflaust Hlýnun Jarðar að Kenna
Það er næsta víst að eitthvað gáfnaljósið á eftir að koma með þá kenningu að snjórinn í Kenýa tengist hlýnun Jarðar. Fast á hæla honum kemur síðan einhver með tenginguna við svarthol, vitiði til.
Snjór í Kenýa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.4.2008 | 18:47
Smiðir ræða við fulltrúa bakara um hengingar
Verðbólga er ekki eitthvað náttúruafl sem ríkisvald og verslanir verða að "vinna á" í sameiningu. Verðbólga er einfaldlega lækkun gengis krónunnar, mæld í vörum sem menn vilja gjarnan skipta krónunum sínum fyrir.
Þegar talað er um verðbólgu, hugsa flestir um matvöruverð og verð á hráefnum, í krónum. En það ber að athuga að verðgildi matvöru og hráefna er óbreytt að mestu leyti, ef miðað er við aðra vöru og önnur hráefni. Það má því segja að mat- og hrávöruverð standi í stað, og það sé verð krónunnar sem er að lækka. Það gefur augaleið að verðmæti raunverulegrar vöru breytist ekki svo auðveldlega, en verðmæti krónunnar getur tekið stórt stökk á einni nóttu.
Verðbólga er bein afleiðing þess að Seðlabankinn hefur verið með útsölu á krónunni. Bankarnir fá splunkunýjar krónur fyrir hlægilegt verð (í formi stýrivaxta), sem eykur framboð á krónum umfram eftirspurn, og lækkun gengis fylgir eðlilega í kjölfarið. Þetta vita seðlabankastjóri og viðskiptaráðherra mætavel, en kjósa að kenna öðrum um, eins og sjá má í þessari frétt, og í fyrri fréttum þar sem seðlabankastjóri talar um að það sé verið að gera atlögu að krónunni. Það eru viðskiptaráðuneytið og seðlabankinn sem eru óvinir krónunnar.
Rætt um leiðir til að vinna á verðbólgu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.1.2008 | 23:01
En hvers á Dalurinn að gjalda?
Það er ansi snjallt, þegar útlit er fyrir að verð á hlutabréfum snarlækki, að láta peningana einfaldlega kosta minna, sem er í hnotskurn það sem það þýðir að lækka stýrivexti. Þá, ef verðið er á niðurleið, lækkum við bara gjaldmiðilinn í verði, og, hókus pókus, allt í einu er verðið hærra.
Frábær sjónhverfing.
Bandarísk hlutabréf lækkuðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.5.2007 | 19:08
Eina heiðarlega leiðin
Það er nokkuð ljóst af orðum Ahmadinejad að eina leiðin til að fá Írani ofan af kjarnorkuáætlunum sínum er að eiga við þá heiðarleg samskipti. Jafnvel segist hann fagna slíkum samskiptum.
Það er einnig nokkuð ljóst að hin einu heiðarlegu samskipti sem möguleg eru við Írani er að hafa þá ofan af þessari vitleysu með valdi. Það væri öllu heiðarlegra en þetta væl og moð allt saman sem við höfum fengið að heyra frá Bandaríkjamönnum, Sameinuðu þjóðunum, og Evrópusambandinu. Megum við þá lesa það úr orðum Ahmadinejad að hann fagni innrás í Íran?
Ahmadinejad: Íranska þjóðin tekur heiðarlegum samskiptum fagnandi" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.4.2007 | 13:45
...En verð á öfund og rógi snarlækkar
Ef marka má umræðuna þessa dagana þá er það ekkert nema yfirgengileg mannvonska sem ræður ríkjum hjá veitingahúsum. Allir vilja fá að sjá einhvern lista yfir hvaða veitingahús hafa lækkað verð á matseðlum sínum síðan 1. mars sl. Allir vilja fá að sjá nafn bakarans svo það sé hægt að hengja hann fyrir smið.
Segjum sem svo að veitingahús A veitir góðan mat og þjónustu á góðu verði, sama góða verðinu fyrir og eftir 1. mars. Veitingahús B ber fram vondan mat og dónaskap á okurverði, en lækkar verðið eftir 1. mars þannig að það er ekki lengur fáránlega dýrt heldur aðeins hlægilega dýrt. En veitingahús A fer á listann yfir vonda fólkið þrátt fyrir að bjóða miklu betur.
Hér eru Neytendastofa og Morgunblaðið að selja öfund og róg. Það selst ekkert jafn vel og sú hugmynd að við séum góð og hinir séu vondir. Það verður að deila svo hægt sé að drottna. Það er með ólíkindum hvað við erum tilbúin að kaupa mikið af ódýru kjaftæði.
En, gott og vel. Næst þegar alþingi lækkar tekjuskatt á einstaklinga, eða hækkar skattleysismörk, þá vil ég fá að sjá lista yfir þau illmenni sem ekki lækkuðu launin sín í kjölfarið.
Það skal tekið fram að höfundur verslar sjaldan eða aldrei við veitingahús vegna þess að hann er andskotanum nískari, og eldar sjálfur ágætlega hvort eð er.
Meirihluti veitinga- og kaffihúsa hafa ekki lækkað verð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.3.2007 | 20:23
Það væri sérhefti ef EKKI væri fjallað um hlýnun...
Vil benda á annað hefti Time:
http://www.time.com/time/magazine/article/0,9171,944914,00.html
Og hér er hollt móteitur við móðursýkinni um hlýnun andrúmslofts af mannavöldum.
http://www.youtube.com/watch?v=XttV2C6B8pU
Fjallað um Ísland í loftslagsumfjöllun Time | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.3.2007 | 22:04
Löglegt samráð?
Framkvæmdastjórar stjórnmálaflokkanna funduðu um auglýsingamál | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.3.2007 | 04:29
Kosningavælið
Er ég einn um að taka eftir því að það fer um þjóðfélagið bylgja af væli og grenjum þegar kemur að kosningum? Allir keppast við að væla einhver innantóm loforð út úr flokkunum, sem auðvitað eru svikin um leið og þing er sett.
Engum dettur auðvitað í hug að alþingi Íslendinga bíði mikilvægari verkefni en að gefa sér eitthvað fyrir sinn snúð. Eins og til dæmis það verkefni að fækka verkefnum alþingis.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.3.2007 | 17:18
Orð til hugvekju
Mér þykir þessi orð eiga erindi við Íslendinga í anda komandi kosninga:
Í nafni hins besta innra með yður, fórnið eigi þessum heimi til þeirra sem eru hans verstu. Í nafni gildanna sem halda yður lifandi, látið eigi sýn yðar af mannkyni afmyndast af hinu ljóta, hinu huglausa og ráðlausa í fari þeirra sem aldrei hafa áunnið sér mannsheitinu.
Týnið eigi vitneskju yðar um það að hin rétta krafa mannsins er upprétt staða, ósáttfús hugur og fótgangur sem ferðast ótakmarkaða vegi. Látið ekki eld yðar slokkna, neista eftir óbætanlegan neista, í vonlausum díkjum þess sem er námundað, næstum, ekki enn, eða alls ekki.
Leyfið eigi hetjunni í sál yðar að farast, einmana og vonsvikinni yfir lífinu sem þér verðskulduðuð, en hafið aldrei getað náð. Athugið veg yðar og eðli baráttunnar. Heimurinn sem þér þráðuð er vinnanlegur, hann fyrirfinnst, hann er raunverulegur, hann er mögulegur, hann er yðar.
-- Ayn Rand : This is John Galt Speaking.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)